Flaug dróna inn um glugga á 27. hæð

Fullkominn dróni á flugi.
Fullkominn dróni á flugi. AFP

Lögreglan í New York mun reyna að hafa uppi á eiganda dróna til yfirheyrslu en flygildinu var flogið inn um glugga á háhýsi í borginni.

Drónanum var flogið á glugga íbúðar á 27. hæð í Waterside Plaza-turninum á laugardag. Úr turninum er útsýni yfir East River. 

Í íbúðinni býr 66 ára gömul kona. Hún var í tölvunni er drónanum var flogið á gluggann og lenti skömmu síðar rétt við fætur hennar inni í íbúðinni. Konan slapp án meiðsla.

Lögreglan hefur lagt hald á drónann en hefur enn ekki komist að því hver eigandinn er.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert