Straumur flóttafólks til Súdan

Móðir ásamt vannærðu barni sínu á sjúkrahúsi í Juba, höfuðborg …
Móðir ásamt vannærðu barni sínu á sjúkrahúsi í Juba, höfuðborg Suður-Súdans. AFP

Um 32 þúsund Suður-Súdanar hafa flúið til nágrannalandsins Súdan það sem af er ári. Fólkið flýr hungursneyð af mannavöldum en borgarastyrjöld hefur geisað í landinu í fjögur ár. 

Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna segir líklegt að mun fleiri muni flýja landið á næstu vikum og mánuðum. 

Fyrir viku var lýst yfir hungursneyð á vissum svæðum í Suður-Súdan. Um 100 þúsund íbúar eiga á hættu að svelta í hel og um milljón til viðbótar býr við vannæringu og skort.

Áður hafði verið gert ráð fyrir að um 60 þúsund Suður-Súdanar myndu flýja til Súdan í ár. Nú er ljóst að sú tala verður mun hærri.

Flestir þeir sem flýja eru konur og börn. Margir karlmenn hafa verið drepnir eða neyddir til að ganga til liðs við stríðandi fylkingar í þessu yngsta ríki heims.

Suður-Súdan var áður hluti af Súdan en fékk sjálfstæði árið 2011. Tæpum tveimur árum síðar braust borgarastyrjöldin út og enn sér ekki fyrir endann á henni.

Frá því að borgarastríðið braust út hafa um 330 þúsund Suður-Súdanar flúið til Súdan. Mun fleiri hafa flúið til Eþíópíu og Úganda. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert