Myrti ömmu sína og tvo lögreglumenn

Maðurinn ók niður tvo lögreglumenn. Báðir létust.
Maðurinn ók niður tvo lögreglumenn. Báðir létust. AFP

Lögregluyfirvöld í Þýskalandi hafa handtekið mann sem myrti ömmu sína og í kjölfarið tvo lögreglumenn. Hinn 24 ára maður er talinn hafa banað 79 ára konu í Muellrose, litlum bæ nærri borginni Frankfurt-an-der-Oder, en þegar upp komst um morðið flúði hann á bíl og olli nokkrum umferðarslysum.

Lögregla brást við og kom upp vegatálmum til að hindra för morðingjans en í stað þess að stöðva ók maðurinn á lögreglumennina sem biðu átekta, með þeim afleiðingum að þeir létust. Maðurinn var handtekinn skömmu síðar, nærri landamærum Póllands.

Samkvæmt frétt AFP hefur lögregla ekki gefið upp hvernig morðið á ömmunni bar að.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert