Fundu grunsamlegan pakka

Lögreglumaður heldur á blómvendi í London.
Lögreglumaður heldur á blómvendi í London. AFP

Grunsamlegur pakki fannst við gatnamót Horse Guards Parade og Birdcage Walk í Westminster í London í kvöld. 

Skammt frá gatnamótunum er Downingstræti þar sem bústaður breska forsætisráðherrans er til húsa.

Lögreglan hefur gert lítið úr atvikinu en heimildir Sky herma að pakkinn hafi verið sprengdur upp.

Mikið viðbúnaðarstig er í London eftir árásina sem var gerð í gær þar sem fimm létu lífið og tugir særðust.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert