Vonbrigði í herbúðum Fillon

Francois Fillon náði ekki í gegn.
Francois Fillon náði ekki í gegn. AFP

Talsmaður Francois Fillon, frambjóðanda mið- og hægrimanna, segir að það séu gríðarleg vonbrigði fyrir Fillon að hafa fallið út í fyrri umferð frönsku forsetakosninganna.

Greint hefur verið frá því, að Emmanuel Macron og Marine Le Pen hafi samkvæmt útgönguspám sigrað í fyrri umferðinni og munu þau því mætast í þeirri seinni, sem fer fram 7. maí. 

Fillon fékk 19,5% atkvæða í fyrri umferðinni eins og og harðlínu­vinstrimaður­inn Jean-Luc Melenchon.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert