Er lestrarhestur á leið í höllina?

AFP

Ef Emmanuel Macron verður kjörinn forseti Frakklands þá verður hann yngstur til þess að gegna því embætti og hann verður einnig sá fyrsti sem ekki kemur úr röðum sósíalista eða repúblikana frá stofnun fimmta lýðveldisins árið 1958. Hugsjónir hans voru aftur á móti ekki á sviði stjórnmála hér áður heldur dreymdi hann um að verða rithöfundur og átti væntanlega ekki von á því að hann myndi enda í Élysée-höll.

Macron hlaut flest atkvæði í fyrri umferð frönsku forsetakosninganna í gær og verður kosið á milli hans og Marine le Pen, formanns Front National, í seinni umferðinni sem fram fer 7. maí. Þrátt fyrir að ekki hafi munað miklu á milli þeirra tveggja í fyrri umferðinni, Macron fékk 23,8% atkvæða en le Pen 21,5%, þá benda allar skoðanakannanir til þess að hann muni vinna stórsigur í seinni umferðinni. En reynslan af kosningum undanfarið hefur sýnt að ekki er hægt að fullyrða neitt fyrr en talið hefur verið úr kjörkössunum. 

Gamall skólabróðir hans, Antoine Marguet, minnist Macron sem vel gefnum lestrarhesti. Macron las klassískar franskar bókmenntir, skrifaði ljóð og sögur strax á unglingsárunum.

„Emmanuel Macron hefur alltaf verið öðruvísi,“ segir Marguet. Þegar aðrir sátu og horfu á sjónvarpið sat hann og las. „Hann var í rauninni jafningi kennaranna. Gríðarlega vel gefinn og fór lengra, hærra og hraðar en aðrir.“

Hjónin Emmanuel Macron og Brigitte Trogneux.
Hjónin Emmanuel Macron og Brigitte Trogneux. AFP

Ljóst má vera að leiklistarkennarinn hans, Brigitte Trogneux, sá hann á þann hátt. „Hann var öðruvísi en allir aðrir. Hann var ekki unglingur. Hann átti samleið á jafningagrunni með fullorðnum,“ segir hún en síðar varð hún eiginkona hans. Þegar þarna var komið var hann 16 ára og hún fertug gift þriggja barna móðir. Hann fór til Parísar til þess að halda áfram námi þar þess fullviss að hann myndi ganga í hjónaband með henni síðar.

Þau töluðu saman í síma daglega. Smá og smátt yfirvann hann allar hennar varnir eða eins og hún lýsir því sjálf. Hann sannaði að þolinmæði þrautir allar vinnur. 

Brigitte Trogneux yfirgaf eiginmanninn og hóf ástarsamband við Macron. Þau gengu í hjónaband árið 2007. Síðan þá hafa þau búið í París ásamt börnum hennar þremur. Allt fram að stofnun En Marche! fyrir ári síðan fór lítið fyrir Trogneux en í kosningabaráttunni undanfarna mánuði hefur hún leikið lykilhlutverk í þágu eiginmannsins. Hún segist sjálf vera forseti aðdáunarklúbbs hans og mætir mjög oft með honum á opinberar samkomur.

Brigitte Trogneux og Emmanuel Macron.
Brigitte Trogneux og Emmanuel Macron. AFP

Þrátt fyrir að hafa ætlað sér að verða rithöfundur útskrifaðist Macron frá Sciences Po háskólanum í París en skólinn er afar vinsæll meðal heldra fólks í Frakklandi. Macron lauk þar MA-námi í almannatengslum og árið 2004 lauk hann námi frá École nationale d'administration (ENA), sem er einn virtasti skóli Frakklands. Ef Macron verður kjörinn forseti í maí þá verður hann fjórði franski forsetinn sem lýkur þaðan námi.  

Að námi loknu starfaði hann hjá hinu opinbera, meðal annars fjármálaráðuneytinu. Þaðan lá leið hans í fjármálageirann og starfaði hann hjá fjárfestingarbankasviði Rothschild & Cie bankans til ársins 2012 er hann hóf störf fyrir þá nýkjörinn forseta François Hollande, fyrst sem aðstoðarmaður en síðar sem ráðherra efnahagsmála. 

AFP

Macron var ákaflega óvinsæll meðal hefðbundinna vinstrimanna enda þóttu skoðanir hans of hallar undir frjálshyggju og tækju hagsmuni fyrirtækja fram yfir verkalýðinn. Sjálfur hefur Macron lýst sér sem frjálslyndum félagshyggjumanni og í raun algjörri andstöðu helsta andstæðingsins Marine le Pen sem aðhylltist þjóðernishugsjónir, er andstæðingur alþjóðavæðingar og andsnúin komu innflytjenda til Frakklands.

Á köldu aprílkvöldi í fyrra komu nokkur hundruð manns saman í bæ skammt fyrir utan París. Flestir voru vinir eða tengdir aðalræðumanni kvöldsins, Emmanuel Macron, fjölskylduböndum. 

Einn lýsti því sem að vera viðstaddur brúðkaup, lítill salur, tilfinningar og ræða. En í raun var það miklu frekar fæðing  - En Marche! (sem hægt er að þýða sem Hreyfingin!) varð að veruleika.

Ekki höfðu allir fyrrum félagar Macron meðal vinstrimanna trú á stjórnmálabrölti hans og töldu flokkinn eiga aðeins eitt framundan - að leggja upp laupana. Einn af samráðherrum Macron lét tengil á lagið I Walk Alone fylgja frétt um stofnun En Marche! En undanfarna mánuði hefur orðið ljóst að Macron gengur ekki einn og þrátt fyrir vantrú margra á getu hans fyrir ári síðan þá stefnir allt í að Macron verði kjörinn forseti Frakklands 39 ára að aldri. 

 Byggt á greinum upp úr nokkrum fjölmiðlum:

 Independent

RTI

BBC

Guardian

Le Monde

Le Parisien

New York Times

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert