Hátíðarhöld á 30 stöðum á landinu

1. maí fundur og kröfuganga 2016.
1. maí fundur og kröfuganga 2016. mbl.is/Árni Sæberg

Alþýðusambandi Íslands hafa borist tilkynningar um 1. maí hátíðarhöld í meira en 30 sveitarfélögum á landinu. Þar fyrir utan eru stóru stéttarfélögin í Reykjavík öll með vegleg kaffisamsæti víðsvegar um borgina eftir að útifundinum á Ingólfstorgi líkur.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ. Hér fyrir neðan má finna dagskrár dagsins.

Reykjavík
Dagskrá 1. maí hátíðarhaldanna í Reykjavík 2017 verður sem hér segir: Safnast saman á Hlemmi kl. 13.00 en gangan hefst kl. 13.30. Lúðrasveitir leika í göngunni. Útifundur á Ingólfstorgi settur klukkan 14:10.

Dagskrá: Söngfjelagið. Ræða: Lilja Sæmundsdóttir, formaður félags hársnyrtisveina. Söngfjelagið. Ræða: Garðar Hilmarsson, formaður starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Amabadama flytur 2 lög. Söngfjelagið/samsöngur – Maístjarnan og Nallinn. Fundarstjóri: Þórarinn Eyfjörð. Öll dagskráin verður táknmálstúlkuð og Hulda M. Halldórsdóttir mun syngja á táknmáli í tónlistaratriðum.

Byggiðn og FIT bjóða félagsmönnum sínum og fjölskyldum þeirra til kaffisamsætis í Grand hóteli við Sigtún að loknum útifundi á Ingólfstorgi.

Efling – stéttarfélag býður félagsmönnum sínum upp á kaffi í Valsheimilinu að Hlíðarenda að hátíðarhöldunum loknum kl. 15.00.

Baráttukaffi Rafiðnaðarsambands Íslands, MATVÍS og Grafíu verður á Stórhöfða 27, 1 hæð gengið inn Grafarvogsmegin og hefst kl. 15.00.

VM - Félag vélstjóra og málmtæknimanna býður félagsmönnum sínum upp á kaffiveitingar að útifundum loknum í Gullhömrum milli kl. 15.00 og 17.00.

VR hitar upp fyrir gönguna í Reykjavík með fjölskylduhlaupi og skemmtun á Klambratúni. Hlaupið hefst kl. 11:00. VR verður svo með verkalýðskaffi eins og venja og verður það haldið í anddyri Laugardalshallarinnar að loknum útifundinum kl. 15.00.

Hafnarfjörður
Baráttutónleikar verða haldnir í Bæjarbíó að Strandgötu 6, Hafnarfirði, í húsi Menningar- og listafélags Hafnarfjarðar milli kl. 13 og 15. Kynnir: Kolbeinn Gunnarsson, formaður Hlífar. Karl Rúnar Þórsson, formaður Starfsmannafélags Hafnarfjarðar, flytur 1. maí ávarp verkalýðsfélaganna í Hafnarfirði. At-Breakpoint  - Jóhanna Guðrún og Davíð - Jón Jónson og Margrét Eir troða upp.

Akranes
Safnast verður saman við Kirkjubraut 40, kl. 14:00 og genginn verður hringur á neðri-Skaga. Undirleik í göngu annast Skólahljómsveit Akraness. Að göngu lokinni verður hátíðardagskrá í sal Verkalýðsfélags Akraness á 3ju hæð Kirkjubrautar 40. Fundarstjóri: Vilhjálmur Birgisson. Ræðumaður dagsins: Ólafur Arnarson. Kvennakórinn Ymur syngur nokkur lög. Kaffiveitingar. Frítt í bíó fyrir börnin í Bíóhöllinni kl. 15:00.

Borgarnes
Hátíðar- og baráttufundur hefst í Hjálmakletti kl. 11.00. Hátíðin sett: Signý Jóhannesdóttir formaður Stéttarfélags Vesturlands. Ræða dagsins: Arna Jakobína Björnsdóttir formaður Kjalar stéttarfélags í almannaþjónustu. Boðið upp í dans, tvö pör sýna dans. Atriði frá Grunnskólanum í Borgarnesi. Egill Ólafsson Stuðmaður með meiru tekur lagið Internasjónalinn. Félögin bjóða samkomugestum í súpu og brauð að fundi loknum. Kvikmyndasýning fyrir börn verður í Óðali kl. 13:30, boðið verður upp á popp og ávaxtasafa.

Stykkishólmur
Kynnir: Dallilja Inga Steinarsdóttir. Ræðumaður: Dröfn Haraldsdóttir, sérfræðingur í félagsmáladeild ASÍ. Sigga Eyrún og Kalli Olgeirs. Stórsveit Snæfellinga. Ka­ffiveitingar.

Grundarfjörður
Kynnir: Helga Hafsteinsdóttir. Ræðumaður: Dröfn Haraldsdóttir, sérfræðingur í félagsmáladeild ASÍ. Sigga Eyrún og Kalli Olgeirs. Stórsveit Snæfellinga. Ka­ffiveitingar.

Snæfellsbær
Kynnir: Guðmunda Wíum. Ræðumaður: Dröfn Haraldsdóttir, sérfræðingur í félagsmáladeild ASÍ. Sigga Eyrún og Kalli Olgeirs. Stórsveit Snæfellinga. Ka­ffiveitingar. Sýning eldri borgara. Bíósýning.

Búðardalur
Dagskrá í Dalabúð kl. 14:30. Kynnir: Kristín G. Ólafsdóttir, stjórnarmaður SDS. Ræðumaður: Eiríkur Þór Theódórsson varaformaður ASÍUng og stjórnarmaður í Stétt Vest. Skemmtiatriði: Stórsöngvarinn- og leikarinn Egill Ólafsson. Kaffiveitingar að lokinni dagskrá.

Ísafjörður
Kröfugangan leggur af stað frá Baldurshúsinu, Pólgötu kl. 14.00. Dagskráin í Edinborgarhúsi: Lúðrasveit tónlistarskólans: Stjórnandi Madis Maekalle. Ræðumaður dagsins: Bergvin Eyþórsson sjómaður. Söngatriði: Sigrún Pálmadóttir, undirleikur Beata Joó. Pistill: Kolbrún Sverrisdóttir verkakona. Leikatriði: Dýrin í Hálsaskógi. Tónlistaratriði: Sigurvegarar Músíktilrauna Between Mountains. Kaffiveitingar í Sindragötu 6, að hátíðarhöldum loknum. Kvikmyndasýningar fyrir börn í Ísafjarðarbíói kl. 14:00 og 16:00.

Bolungarvík
Bolvíkingum er boðið í kaffi og meðlæti 1. maí  kl. 14:30. Dagskrá: Tónlistarskóli Bolungarvíkur skemmtir af sinn alkunnu snilld. Hjörtur Traustason og Bjarki Einarsson taka nokkur lög.

Suðureyri
Kröfuganga frá Brekkukoti kl. 14. Boðsund barna í Sundlaug Suðureyrar. Ræða dagsins: Lilja Rafney Magnúsdóttir. Tónlist og söngur barna. Dúettinn Between Moutains. Kaffiveitingar í félagsheimili Súgfirðinga.

Blönduós
Dagskráin hefst kl. 15:00 í félagsheimilinu. Ræðumaður dagsins: Hólmfríður Bjarnadóttir, fyrrum stjórnarkona í Stéttarfélaginu Samstöðu. Afþreying fyrir börnin. Kaffiveitingar.

Sauðárkrókur
Hátíðarsamkoma stéttarfélaganna verður haldin kl. 15 í sal Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Ræðumaður dagsins: Ásgerður Pálsdóttir, fyrrverandi formaður Stéttarfélagsins Samstöðu. Nemendur úr Grunnskólanum austan Vatna munu skemmta veislugestum. Sigfús Arnar Benediktsson og Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir leika nokkur lög. Geirmundur Valtýsson leikur á nikkuna. Kaffiveitingar.

Fjallabyggð
Dagskrá verður í sal félaganna, Eyrargötu 24b Siglufirði milli kl. 14:30 og 17:00. Ávarp 1. maínefndar stéttarfélaganna flytur Margrét Jónsdóttir. Kaffiveitingar.

Akureyri
Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið Kl. 13:30 og kröfugangan leggur af stað kl. 14 við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar. Hátíðardagskrá í HOFI að lokinni kröfugöngu: Ávarp 1. maínefndar stéttarfélaganna: Brynjar Karl Óttarsson kennari. Aðalræða dagsins: Aðalheiður Steingrímsdóttir, varaformaður Kennarasambands Íslands. Skemmtidagskrá: Norðlenskar konur í tónlist. Ásdís Arnardóttir kontrabassi, Helga Kvam píanó, Kristjana Arngrímsdóttir söngur og Þórhildur Örvarsdóttir söngur. Eyþór Ingi Gunnlaugsson. Kaffiveitingar að lokinni dagskrá.

Húsavík
Hátíðardagskrá í Íþróttahöllinni kl. 14:00. Dagskrá:Ávarp: Aðalsteinn Árni Baldursson formaður Framsýnar stéttarfélags. Hátíðarræða: Ósk Helgadóttir varaformaður Framsýnar stéttarfélags. Sálubót: Söngfélagið Sálubót syngur nokkur lög. Stjórnandi Jaan Alavere. Hjalti Jónsson og Lára Sóley Jóhannsdóttir spila og syngja þekkt dægurlög. Ari Eldjárn skemmtir gestum. Guðrún Gunnarsdóttir og Sigríður Beinteinsdóttir heiðra minningu Ellýjar Vilhjálms með því að syngja lögin hennar. Kaffiveitingar.

Vopnafjörður
Hátíðardagskrá  verður í Félagsheimilinu Miklagarði kl. 14:00. Ræðumaður: Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir. Tónlistaratriði. Kaffiveitingar.

Borgarfjörður eystri
Hátíðardagskrá verður í Álfheimum kl. 12.00. Ræðumaður: Reynir Arnórsson. Súpa og meðlæti.

Seyðisfjörður
Hátíðardagskrá verður í Félagsheimilinu Herðubreið kl. 15:00. Ræðumaður: Pálína Margeirsdóttir. Kaffiveitingar og skemmtiatriði.

Egilsstaðir
Hátíðardagskrá verður á Hótel Héraði  kl. 10.30. Ræðumaður: Pálína Margeirsdóttir. Morgunverður  og tónlistaratriði.

Reyðarfjörður
Hátíðardagskrá verður í Safnaðarheimili Reyðarfjarðar kl. 15:30. Ræðumaður: Grétar Ólafsson. Kaffiveitingar og tónlist.

Eskifjörður
Hátíðardagskrá verður í Melbæ Félagsheimili eldri borgara kl. 14:00. Ræðumaður: Grétar Ólafsson. Tónskóli Reyðarfjarðar. Kaffiveitingar og tónlistaratriði.

Neskaupstaður
Hátíðardagskrá verður á Hildibrand hótel kl. 14:00. Ræðumaður: Sverrir Kristján Einarsson. Tónlistaratriði: Félag harmonikkuunnenda Neskaupstað. Kaffiveitingar.

Fáskrúðsfjörður
Hátíðardagskrá verður í Félagsheimilinu Skrúð kl. 15:00. Ræðumaður: Jökull Fannar Helgason. Tónlistarskóli Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar. Kaffiveitingar.

Stöðvarfjörður
Hátíðardagskrá í Saxa Guesthouse kl. 15:00. Ræðumaður: Sigurður Hólm Freysson. Tónlistarskóli Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar. Kaffiveitingar.

Breiðdalsvík
Hátíðardagskrá verður  á Hótel Bláfelli  kl. 14:00. Ræðumaður: Sigurður Hólm Freysson. Kaffiveitingar og tónlistaratriði.

Djúpavogur
Hátíðardagskrá verður á Hótel Framtíð  kl. 11:00. Ræðumaður: Sverrir Mar Albertsson. Morgunverður og tónlistaratriði.

Hornafjörður
Hátíðardagskrá á Z Bistro kl. 14:00. Ræðumaður: Sverrir Mar Albertsson. Lúðrasveit Hornafjarðar, leikhópur FAS, tónlistaratriði. Kaffiveitingar.

Selfoss
Kröfuganga við undirleik Lúðrasveitar Selfoss kl. 11:00. Félagar úr Sleipni fara fyrir göngunni á hestum. Lagt verður af stað frá húsi stéttarfélaganna Austurvegi 56 og gengið að Hótel Selfoss þar sem hátíðardagskráin verður haldin innandyra. Dagskrá á Hótel Selfossi. Kynnir: Hjalti Tómasson. Ræður dagsins: Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands. Skemmtiatriði: Karitas Harpa syngur nokkur lög. Leikhópur Menntaskólans á Laugarvatni sýnir atriði úr Konungi ljónanna. Félagar úr Bifreiðaklúbbi Selfoss sýna stórglæsilega bíla sína. Teymt undir börnum í Sleipnishöllinni frá kl. 12:30 til 14:30. Marie Valgarðsson verður með blöðrur fyrir börnin.

Vestmannaeyjar
Dagskrá í Alþýðuhúsinu, húsið opnar kl. 14 og baráttufundur hefst kl. 14:30. Drífa Snædal framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins flytur 1. maí ávarpið. Nemendur Tónlistarskóla Vestmannaeyja sjá um tónlistina. Kaffisamsæti í boði stéttarfélagana.

Reykjanesbær
Hátíðardagskrá í Stapa, húsið opnar Kl. 13:45 - Guðmundur Hermannsson leikur létt lög. Kynnir - Guðbrandur Einarsson formaður VS og LÍV. Setning kl.14:00: Guðbjörg Kristmundsdóttir, varaformaður VSFK. Leikfélag Keflavíkur – Litla Hryllingsbúðin. Ræða dagsins: Kristján Þórður Snæbjarnarson formaður RSÍ. Söngur – Jóhanna Guðrún og Davíð Sigurgeirsson. Sönghópurinn Víkingarnir. Kl. 13:00 er börnum boðið á bíósýningu í Sambíói Keflavík.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert