11 létu lífið í rútuslysi

Frá Pakistan.
Frá Pakistan. AFP

Í það minnsta 11 létu lífið þegar smárúta með of mörgum farþegum féll niður gil í fjalllendi í norðvesturhluta Pakistans í morgun. Meðal hinna látnu eru konur og börn.

„Þeir sem létu lífið gerðu það samstundis. Níu aðrir slösuðust og fjórir þeirra eru alvarlega slasaðir,“ sagði embættismaðurinn Faheedullah Khan við AFP-fréttastofuna.

Khan segir að rútan hafi hrapað ofan í gilið sem var 46 metra djúpt. Þrjár konur, sex ára stelpa og sjö ára strákur voru meðal hinna látnu. 

Bílstjórinn missti stjórn á bifreiðinni í beygju en hálka var á veginum vegna snjóa. Khan bætti því við að farþegarnir hefðu verið of margir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert