Óljóst hvenær mennirnir létust

AFP

Yfirvöld í Nepal hafa ekki getað borið kennsl á lík fjögurra fjallgöngumanna sem fundust í búðum fjög­ur á Ev­erest í gær. Talið er hugsanlegt að mennirnir hafi látið lífið fyrir einhverjum árum.

Mennirnir fundust þegar björgunarsveitir voru að ná í lík Slóvaka sem fórst á fjall­inu. „Björgunarsveitir fundu lík fjögurra fjallgöngumanna í gær. Við höfum ekki getað borið kennsl á þá né hvernig þeir létu lífið,“ sagði Mingma Sherpa, sem stýr­ir starfi björg­un­ar­sveita á Ev­erest.

Fjölmiðlar í Nepal greina frá þvi að tveir mannanna séu erlendir og hinir tveir heimamenn. 

„Okkar heimildamenn í grunnbúðunum gátu ekki staðfest að einhverra sem væru að klífa fjallið væri saknað. Okkur grunar því að þarna hafi fundist menn sem létu lífið fyrir mörgum árum,“ sagði Durga Dutta Dhakal við AFP.

Kröftugir vindar voru á Ev­erest í gær sem varð til þess að margir urðu að snúa við úr áætluðum leiðöngrum sínum og halda til í tjöldum í búðum fjögur.

Af þeim sökum hafa sprottið upp orðrómar um að mennirnir hafi látið lífið úr eitrun eftir að hafa kveikt eld inni í lokuðu rými í tjaldinu sínu. Ef mennirnir létu lífið nýlega er tala látinna á Ev­erest í vor komin upp í tíu.

Fjór­ir fór­ust á Ev­erest um helg­ina, þar á meðal banda­ríski lækn­ir­inn Roland Ye­arwood og Vla­dimir Strba frá Slóvakíu. Báðir lét­ust í meira en átta þúsund metra hæð á svæði sem er nefnt „dauðasvæðið“ þar sem súr­efn­ismörk falla mjög hratt og mik­il hætta er á háfjalla­veiki.

Lík ind­verska fjall­göngu­manns­ins Ravi Kumar, 27 ára, fannst á mánu­dag en tveim­ur dög­um áður hafði hann staðið á tindi Ev­erest. Ástr­alsk­ur fjall­göngumaður fórst síðan Tíbet­meg­in á Ev­erest á sunnu­dag.

Tveir aðrir, Sviss­lend­ing­ur­inn Ueli Steck og Min Bahadur Sherch­an, 85 ára, höfðu fyrr á tíma­bil­inu lát­ist á fjall­inu. Steck var einn þekkt­asti fjall­göngumaður heims en Sherch­an hafði ætlað sér að verða elst­ur til þess að toppa Ev­erest.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert