Ástandið í Linby-götu í Manchester er öruggt að mati lögreglunnar eftir að grunsamlegur pakki fannst þar. Sprengjusveit lögreglunnar var kölluð á vettvang í hverfið Humle sem er skammt frá miðborg Manchester.
Aðeins nokkrir dagar eru síðan hryðjuverkaárás var gerð í Manchester Arena þar sem 22 manns fórust og 64 særðust.
Þó nokkrum götum var lokað vegna atviksins í Linby-götu en búið er að opna fyrir þær aftur.
Fyrst kom fram að sprengjusveitin væri stödd við framhaldsskóla í Trafford en það reyndist ekki rétt.
UPDATE - This incident has now been deemed safe and the cordon has been removed. Apologies for any confusion. pic.twitter.com/xdE9jqODeN
— G M Police (@gmpolice) May 25, 2017