Sjö milljónir deyja árlega vegna tóbaks

Sjö milljónir manna látast á ári hverju af völdum tóbaksnotkunar.
Sjö milljónir manna látast á ári hverju af völdum tóbaksnotkunar. AFP

Yfir sjö milljónir manna látast á ári hverju af völdum reykinga og annarrar tóbaksnotkunar, samkvæmt nýrri skýrslu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.

Þar er einnig varað við slæmum umhverfisáhrifum tóbaksframleiðslu, dreifingar og förgunar á slíkum vörum.

Beita þarf harðari aðgerðum til að stemma stigu við tóbaksneyslu, að mati stofnunarinnar. Hvetur hún þjóðir heimsins til að banna reykingar á vinnustöðum, í almannarýmum innandyra, að banna markaðssetningu tóbaks og til að hækka verð á sígarettum.

„Tóbak ógnar okkur öllum,“ sagði Margaret Chan, yfirmaður stofnunarinnar, í yfirlýsingu.

„Tóbak eykur fátækt, dregur úr efnahagslegri framleiðni, á þátt í slæmu fæðuvali á heimilum og mengar loft innanhúss,“ sagði hún.

„Reykingar drepa,
„Reykingar drepa," stendur á þessum franska sígarettupakka. AFP

Í skýrslunni, sem var gefin út í tilefni þess að dagur gegn tóbaki verður haldinn á morgun, varar stofnunin við því að dauðsföll vegna reykinga og annars tóbaks muni halda áfram að aukast.

Búist er við að einn milljarður manna látist af völdum tóbaksnotkunar á þessari öld.

„Árið 2030 munu yfir 80% dauðsfallanna eiga sér stað í þróunarríkjunum, sem tóbaksfyrirtæki hafa í auknum mæli snúið sér að í von um að komast inn á nýja markaði vegna hertra reglugerða í þróuðum ríkjum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert