Maður lést í gærkvöldi eftir að hafa stokkið út í Signu af brú (Pont Neuf ) í hjarta Parísarborgar. Mikið var um dýrðir víða í Frakklandi í gær á árlegri hátíð tónlistar, Fête de la Musique.
Samkvæmt frétt BFM sjónvarpsstöðvarinnar stökk maðurinn, sem var 35 ára, af fúsum og frjálsum vilja út í ána. Honum var bjargað á landi um klukkan 23:15 en ekki tókst að bjarga lífi hans. Dánarorsökin er hjartaáfall, að sögn lögreglu.
Fête de la Musique er haldin út um allt Frakkland og er ein helsta hátíð landsins en yfir 17 þúsund tónleikar voru haldnir þar í gær. Líkt og venjulega iðaði París af lífi þetta kvöld og vegna hitabylgjunnar brugðu margir á það ráð að stökkva út í Signu og skurði Parísar til að kæla sig niður.
Mikill viðbúnaður var hjá lögreglu vegna ótta við árásir en alls voru tæplega 150 handteknir í París í gær.