Kona sem þóttist vera karlmaður til þess að gabba vinkonu sína til þess að stunda með sér kynlíf hefur verið dæmd í sex ára fangelsi.
Gayle Newland var fundin sek um að hafa brotið á konu eftir að hún notaði gervilim til að gabba vinkonu sína til að stunda kynlíf með sér. Brotaþolinn var alltaf með bundið fyrir augun þegar þau hittust en í eitt skiptið tók hún frá augunum og sá Newland.
Newland snökti og hrundi í gólfið þegar dómarinn hvað upp dóminn í dag. Áður hafði hún verið dæmd í átta ára fangelsi í nóvember 2015 en fyrirskipað var að réttað yrði aftur í málinu vegna þess að dómurinn var ógiltur í áfrýjunardómstóli.
Newland sagðist vera karlmaður að nafni Kye Fortune og var með brjóst sín bundin niður til þess að sannfæra vinkonu sína. Hún var dæmd sek um þrjár kynferðisárásir.
Newland viðurkenndi að hafa búið til Facebook-aðgang í nafni Kye Fortune. Þegar hún hitti fórnarlamb sitt bað hún hana um að vera með bundið fyrir augun öllum stundum. Hún samþykkti það og var með bundið fyrir augun þegar þær sátu fyrir framan sjónvarpið, í sólbaði og þegar Newland braut á henni kynferðislega.
„Ég get ekki farið aftur í fangelsi,“ sagði Newland eftir að niðurstaða dómara lá fyrir í dag.