Erdogan: Skiptið ykkur ekki af málefnum Tyrklands

Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta segir þýskum stjórnvöldum að hætta að …
Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta segir þýskum stjórnvöldum að hætta að skipta sér af innanríkismálum landsins. JEAN-MARC LOOS

Stjórnvöld í Þýskalandi hafa engan rétt á að skipta sér af innanríkismálum Tyrklands. Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti lét þessi orð falla í dag. Samskipti ríkjanna tveggja fara nú sífellt versnandi, ekki hvað síst vegna þess að þýsk yfirvöld hafa handtekið mikinn fjölda fólks undanfarið, m.a. nokkra þýska ríkisborgara, í nafni neyðarlaganna sem komið var á í landinu eftir misheppnaða valdaránstilraun síðasta sumar.

Yfirvöld í Þýskalandi hafa nú varað landsmenn við að yfirvöld geti ekki tryggt öryggi þeirra sem ferðast til Tyrklands og að ekki sé öruggt að þýska sendiráðið í Tyrklandi geti aðstoðað viðkomandi.

Þá hefur Sigmar Gabriel, utanríkisráðherra Þýskalands, varað þýsk fyrirtæki við því að fjárfesta í tyrkneskum fyrirtækjum og sagði að endurskoða þyrfti samskipti ríkjanna.

„Tyrkland er lýðræðisríki sem byggir á lögum og enginn hefur rétt á að skipta sér af innanlandsmálum þess,“ sagði Erdogan í dag. Varðandi orð Gabriels sagði Erdogan að bæði Tyrkland og Þýskaland væru aðilar að NATO. „Við Tyrkir erum nú í  samningaferli til að gerast aðilar að Evrópusambandinu.“

Wolfgang Schaeuble, fjármálaráðherra Þýskalands, varaði Erdogan í viðtali við þýska dagblaðið Bild við því að hann væri að stofna aldagömlu sambandi Þýskalands og Tyrklands í hættu.

„Þetta er verulega átakanlegt – því það er raunverulega svo margt sem tengir okkur. En við látum ekki kúga okkur,“ sagði Schaeuble í viðtalinu sem birt verður í blaðinu á morgun.

Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti segir þýskum stjórnvöldum að hætta að …
Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti segir þýskum stjórnvöldum að hætta að skipta sér af innanríkismálum landsins. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert