48 manns slösuðust í lestarslysi

18 hafa verið fluttir á sjúkrahús.
18 hafa verið fluttir á sjúkrahús. AFP

Að minnsta kosti 48 manns slösuðust, þar af einn alvarlega, eftir lestarslys á Francia-lestarstöðinni í Barcelona á Spáni snemma í morgun. Lestin skall á stuðpúða á talsverðri ferð með fyrrgreindum afleiðingum.

18 af þeim 48 sem slösuðust hafa verið flutt á sjúkrahús til frekari aðhlynningar. Lestarstjórinn er einn þeirra sem var fluttur á sjúkrahús. 

Ekki er vitað nákvæmlega hvað olli slysinu. 

Lestin skall á svokallaðan stuðpúða á lestarstöðinni.
Lestin skall á svokallaðan stuðpúða á lestarstöðinni. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert