Kínverskur maður hefur verið dæmdur til dauða fyrir að myrða 19 manns með haka. Meðal fórnarlamba mannsins voru foreldrar hans og börn. Morðinginn, sem er 28 ára, hyggst ekki áfrýja dómnum.
Yang Qingpei myrti foreldra sína 28. september síðastliðinn, þegar þeir neituðu að gefa honum peninga. Þar sem hann óttaðist að upp um hann kæmist tók hann sig til í kjölfarið og myrti 17 nágranna foreldra sinna, þar af þrjú börn.
Morðinginn flúði síðan til Kunming, höfuðborgar Yunnan-héraðs.
Hann játaði sekt sína og bað ættingja fórnarlamba sinna fyrirgefningar þegar réttarhöld hófust 19. júlí.
Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að aðferðir Yang hefðu verið „sérstaklega grimmilegar“ og fordæmdi hann fyrir „illt ráðabrugg“.