58 drepnir á Filippseyjum á 3 dögum

Maður grætur á götu i Manila eftir að hafa horft …
Maður grætur á götu i Manila eftir að hafa horft upp á ættingja sinn drepinn í aðgerðum lögreglu í borginni í nótt. AFP

Aukin harka virðist vera að færast í stríð filippseysku lögreglunnar gegn fíkniefnum og hafa 58 verið drepnir í aðgerðum lögreglu sl. þrjá sólahringa. 26 létust í aðgerðum lögreglu í Manila, höfuðborg Filippseyja í nótt og þá drap lögregla 32 í Bulacan héraði sólarhringinn á undan.

Erwin Margarejo, talsmaður lögreglunnar í Manila, sagði aðgerðina hafa hafist seint  í gærkvöldi og að um væri að ræða einstaka stóraðgerð. Reuters segir lögregluna í Bulacan hafa notað sömu lýsingu og að allir þeir sem þar létust hafi verið meintir fíkni­efna­salar sem hafi verið vopnaðir og var­ist hand­töku.

Að sögn lögreglu voru 179 handteknir í 84 aðgerðum í Manila og Bulacan. Segir lögregla að í flestum tilfellum hafi verið um að ræða aðgerð þar sem óeinkennisklæddur lögreglumaður reynir að kaupa eiturlyf frá fíkniefnasala, sem síðan á að handtaka.

„Þetta var eins stök stóraðgerð, þannig að fókusinn var ekki bara á fíkniefni. Við vorum líka að taka á götuglæpum á borð við rán, en þessir einstaklingar gátu verið undir áhrifum fíkniefna,“ sagði Margarejo. „Ef þeir sýndu ofbeldisfullan mótróa gegn handtöku, þá verða lögreglumenn okkar að geta varið sig.“

Lögegla að störfum á vettvangi í Manila, þar sem meintur …
Lögegla að störfum á vettvangi í Manila, þar sem meintur fíkniefnasali var drepinn í aðgerðum lögreglu. AFP

Þúsund­ir hafa verið drepnir frá því að Rodrigo Duterte, for­seti Fil­ipps­eyja, lýsti yfir um­deildu stríði gegn fíkni­efn­um í fyrra. Er her­ferð for­set­ans ætlað að þurrka með öllu út fíkni­efnaviðskipti í land­inu. Hún hef­ur hins veg­ar verið harðlega gagn­rýnd af mann­rétt­inda­sam­tök­um og alþjóðasam­fé­lag­inu vegna fjölda dauðsfalla.

Duterte hef­ur áður rétt­lætt dráp án dóms og laga og sagði hann gott að 32 glæpamenn hefðu verið drepnir í aðgerðunum í Bulacan. „Drepum 32 til viðbótar á hverjum degi. Þá getum við kannski dregið úr því sem þjáir þetta land,“ sagði Duterte.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert