Hinn 17 ára gamli Moussa Oukabir, sem talinn er hafa verið ökumaður sendiferðabílsins sem ekið var á hóp fólks á Römblunni í Barcelona í gær, gæti verið einn þeirra fimm sem lögreglumenn skutu til bana í bænum Cambrils í gær. Þetta segir spænska lögreglan að því er fram kemur á vef Sky fréttastofunnar.
Þrettán manns létust og yfir hundrað særðust í hryðjuverkaárásinni. Er Oukabir sagður hafa hlaupið af vettvangi eftir að hafa ekið bílnum inn í mannfjöldann.
Moussa er bróðir Driss Oukabir sem handtekinn var í gær, grunaður um aðild að hryðjuverkaárásinni, en skilríki þess síðarnefnda voru notuð til að leigja sendiferðabílinn.
Carles Puigdemont, forseti Katalóníu, varaði við því í útvarpsviðtali í morgun að grunaður hryðjuverkamaður hefði komist undan eftir hryðjuverkaárásina og á meðan hann væri á flótta gæti enn stafað hætta af honum.
Spænska lögreglan kom seint í gærkvöldi í veg fyrir aðra hryðjuverkaárás í bænum Cambrils, um 100 km suður af Barcelona. Þar voru fimm meintir hryðjuverkamenn skotnir til bana, en þeir voru í sendiferðabíl sem ók á gangandi vegfarendur í bænum með þeim afleiðingum að einn lést og sjö særðust.
Árásarmennirnir á Römblunni í gær eru taldir hafa ætlað sér að nota einhvers konar gassprengjur í árásinni til að valda enn meiri skaða, en talið er að árásirnar í Barcelona og Cambrils tengist sprengingu sem varð í húsi í bænum Alcanar á miðvikudag. Einn lést í þeirri sprengingu, en að sögn lögreglustjórans, Joseps Lluis Traperos, virðist sem íbúar hússins hafi verið að útbúa gassprengjur.
Yfirvöld í Katalóníu segja það nú í forgangi að bera kennsl á árásarmennina og sýna fram á tengsl þeirra þriggja sem handteknir hafa verið, þeirra sem felldir hafa verið og þeirra sem komust undan. Talið er að þeir séu hluti af 12 manna hópi.