Snertu á henni kynfærin og hlógu

Tvö myndbönd hafa verið birt á netinu með tveggja vikna …
Tvö myndbönd hafa verið birt á netinu með tveggja vikna millibili sem sýna kynferðislega áreitni kvenna í Marokkó. AFP

Sex ungir menn voru handteknir í Marokkó í dag eftir að myndband sem sýnir mennina áreita konu kynferðislega um borð í strætisvagni vakti hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum.

Á myndbandsupptökunni, sem birt var í gær, sjást sex unglingar, berir að ofan, áreita konuna, snerta á henni kynfærin og hlæja. Sést þar hvernig konan grætur og kallar á hjálp en enginn hinna farþeganna kemur henni til hjálpar.

Lögreglan í Marokkó hefur handtekið sexmenningana, sem eru á aldrinum 15 til 20 ára, en atburðurinn átti sér stað á föstudagskvöld í borginni Casablanca.

Atvikið átti sér stað aðeins tveimur vikum eftir að myndbandi var deilt á netinu þar sem nokkrir karlmenn sjást hundelta unga konu þar sem hún gengur ein heim í borginni Tangier í norðurhluta landsins.

Í kjölfarið hafa myndast miklar umræður um kynferðislega áreitni í landinu en tölur sýna að nærri tveir þriðju hlutar kvenna í Marokkó hafa orðið fyrir ofbeldisfullum árásum, oftar en ekki á opinberum svæðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert