42 slösuðust í lestarslysi

Frá Fíladelfíu.
Frá Fíladelfíu. AFP

Alls slösuðust 42, eða allir um borð, þegar hraðlest var ekið á kyrrstæða lest á lestarstöð í Fíladelfíu í nótt. Enginn er í lífshættu og eru 36 með minni háttar áverka. 

Að sögn talskonu járnbrautarfyrirtækisins voru 42 um borð í lestinni þegar henni var ekið á kyrrstæðu lestina í Upper Darby-hverfinu. Unnið er að rannsókn slyssins sem varð skömmu eftir miðnætti að staðartíma.

Að sögn farþega var blóð út um allt þar sem fólkið í lestinni hentist úr sætum sínum við áreksturinn og misstu einhverjir meðvitund. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert