Fyrrverandi landsliðsmarkvörður í varðhaldi

Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, telur að útlagaklerkurinn Fethullah Gulen …
Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, telur að útlagaklerkurinn Fethullah Gulen standi á bak við misheppnaða valdaránstilraun í landinu í fyrra. AFP

Tyrknesk yfirvöld hafa fært fyrrverandi markvörðinn Omer Catkic í varðhald. Catkic, sem lék meðal annars með Bursaspor í efstu deild tyrknesku knattspyrnunnar, er sakaður um að tilheyra hópi sem stóð á bak við misheppnað valdarán gegn Recep Tayyip Erdogan, forseta Tyrklands, í fyrra.

Catcik var færður í varðhald en hann er talinn tengjast útlagaklerknum Fethullah Gulen. Tyrknesk yfirvöld telja að Gulen standi á bak við misheppnuðu valdaránstilraunina.

Catkic er sakaður um að hafa sent skilaboð í gegnum app sem yfirvöld telja að stuðningsmenn Gulen hafi notað til að skipuleggja valdaránið en Gulen hefur hins vegar ávallt neitað aðild að valdaráninu.

Catkic lék 19 A-landsleiki fyrir Tyrkland á árunum 1999-2012 en hann lagði hanskana á hilluna fyrir fimm árum. Síðan hefur hann unnið við leiklýsingar í sjónvarpi. 

Yfir 50 þúsund manns eru í haldi í tengslum við valdaránið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert