Skipulögðu stærri árásir

Mohamed Houli Chemlal, Driss Oukabir, Salah El Karib og Mohamed …
Mohamed Houli Chemlal, Driss Oukabir, Salah El Karib og Mohamed Aallaa eru grunaðir um að eiga aðild að hryðjuverkunum í Barcelona. AFP

Mohamed Houli Chemlal, grunaður meðlimur í hryðjuverkahópnum sem skipulagði árásina í Barcelona í síðustu viku, viðurkenndi fyrir dómara í dag að hann og félagar hans hefðu skipulagt stærri árásir.

Þetta kemur fram í frétt AFP-fréttastofunnar.

Fjórir menn, sem sakaðir eru um að tilheyra hópnum sem stóð á bak við tilræðið í Barcelona hafa komið fyrir dómara í Madríd í dag.

15 létu lífið og yfir hundrað slösuðust þegar You­nes Abouya­aqoub keyrði flutningabíl inn í mannmergð á Römblunni í Barcelona á fimmtu­dag. Lögregla skaut Abouya­aqoub til bana í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert