Að minnsta kosti einn lést og sex slösuðust þegar byssumaður hóf skothríð í kirkju í Nashville í Tennessee í dag. Byssumaðurinn var skotinn á vettvangi og fluttur á sjúkrahús.
Lögreglan í Nashville fékk tilkynningu um skotárás í Brunette Chapel Church of Christ-kirkjunni í Antioch rétt eftir klukkan 11 að morgni að staðartíma. Í færslu slökkviliðsins í Nashville á Twitter segir að allir hinir slösuðu hafi verið færðir á sjúkrahús, en meirihlutinn sé eldra fólk.
Öll fórnarlömbin nema eitt eru yfir sextugt.
Reported shooting at Burnette Chapel Church of Christ on Pin Hook Rd. in Antioch. pic.twitter.com/Gyak0jEDRZ
— FoxNashville (@FOXNashville) September 24, 2017
This is a mass casualty situation. All of the wounded have been transported to area hospitals. The majority are older adults.
— Nashville Fire Dept (@NashvilleFD) September 24, 2017