Fær dvalarleyfi í Hong Kong

AFP

Bresk lesbía hafði betur í dómsmáli gegn Hong Kong en yfirvöld þar synjuðu henni um heimild til þess að flytja til konu sinnar og starfa í Hong Kong. Talið er að dómurinn hafi fordæmisgildi fyrir fleiri hundruð samkynhneigð pör sem ekki hafa fengið leyfi til þess að búa þar í staðfestri sambúð.

Konurnar hafa verið í staðfestri sambúð frá árinu 2011. Þá bjuggu þær í Bretlandi en fluttu til Hong Kong það sama ár þar sem konu hennar var boðið starf í borginni. 

Konunni sem sótti málið, nefnd QT í dómsskjölum, var synjað um dvalarleyfi í Hong Kong og gert að dvelja í Hong Kong á grundvelli ferðamannaáritunar. Vegna þessa hefur hún ekki getað unnið í borginni.

Í fyrra hafnaði undirréttur beiðni konunnar en nú hefur áfrýjunardómstóll snúið niðurstöðunni við. Segir í niðurstöðu dómsins að Útlendingastofnun hafi ekki tekist að réttlæta óbeina mismunum á grundvelli kynhneigðar konunnar. 

Aðgerðarsinnar og félagar í LGBT-samtökum fagna niðurstöðinni. Um sé að ræða sigur fyrir samkynhneigða sem vilja fá dvalarleyfi í Hong Kong.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert