Óheppni þjófurinn

AFP

Japani var handtekinn í gær eftir að hafa reynt að stela bíl sem stóð á bílastæði en hann hafði ekki tekið eftir lögreglumönnum sem sátu í bifreiðinni.

Ushio Sato, 23 ára, var handtekinn þegar hann reyndi að stela ómerktum lögreglubíl í borginni Numazu. Samkvæmt fréttum japanskra fjölmiðla tók þjófurinn óheppni ekki eftir lögreglumönnunum sem voru í bílnum. Sato reyndi að flýja af vettvangi á hlaupum en komst ekki langt áður en lögreglan náði honum.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert