Að minnsta kosti fimmtán létust og 40 særðust í sjálfsvígsárás og skotárás á þjálfunarbúðir lögreglu í suðausturhluta Afganistans í morgun.
Meðal fórnarlamba árásarinnar eru konur, námsmenn og lögreglumenn, samkvæmt upplýsingum frá Paktia-héraði þar sem árásin var gerð.