Náðu spítala á sitt vald í Raqqa

Hersveitir, sem njóta stuðnings Bandaríkjahers, hafa náð ríkisspítalanum í Raqqa á sitt vald en vígasveitir Ríkis íslams eru smátt og smátt að missa yfirráðin yfir borginni sem áður var þeirra helsta vígi í Norður-Sýrlandi.

Í tilkynningu frá sýrlenska lýðræðishernum kemur fram að ríkisspítalinn hafi verið frelsaður og 22 útlendir málaliðar drepnir. Bardagar standa enn yfir í nágrenninu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert