Einn lést í hótelbruna

Lúxushótelið
Lúxushótelið Ljósmynd/kandawgyipalace.htoohospitality.com

Að minnsta kosti einn lést í eldsvoða í lúxushóteli í borginni Yangon í Búrma. Tveir særðust í eldsvoðanum sem braust út um kl. 20.30 á hótelinu Kandawgyi Palace. Það tók rúmlega 100 slökkviliðsmenn nokkrar klukkustundir að ráða niðurlögum eldsins. Yfir 140 hótelgestir þurftu að yfirgefa það. BBC greinir frá.  

Hótelið er að stærstum hluta byggt út tekk í búrmneskum stíl. Hótelið var þekkt og eftirsóttur ferðamannastaður.  

Ekki er vitað um eldsupptök. Ekki hefur verið borin kennsl á hinn látna. 

Einn bandarískur hótelgestur greindi frá því að ekki hafi heyrst í brunavarnarkerfinu. Gesturinn hafi hins vegar vaknað upp við að starfsmaður hótelsins bankaði á herbergishurðina.   

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert