Stjórnmálamenn „gráta krókódílatárum“

Mikill fjöldi kom saman í dag til að krefjast réttlætis …
Mikill fjöldi kom saman í dag til að krefjast réttlætis vegna morðsins á Galizia. AFP

Þúsundir komu saman á Möltu í dag til að minnast rannsóknarblaðakonunnar Daphne Caruna Galizia og krefjast réttlætis vegna morðsins á henni. Galiza lést á mánudaginn eftir að sprengja sem komið hafði verið fyrir í bíl hennar, sprakk, þegar hún var nýlögð af stað frá heimili sínu. BBC greinir frá.

Galizia hafði sakað stjórn­völd á Möltu um spill­ingu en hún hafði fjallað ít­ar­lega um Pana­maskjöl­in og tengsl ráðamanna við af­l­ands­fyr­ir­tæki. Hún hélt úti bloggsíðu þar sem hún kom skrifum sínum á framfæri, og færslur hennar fengu mikinn lestur.

Forsætisráðherra landsins sagðist ekki ætla að mæta og vera hræsnari.
Forsætisráðherra landsins sagðist ekki ætla að mæta og vera hræsnari. AFP

Einhverjir stjórnstjórnmálamenn héldu sig frá fjöldafundinum í dag, þar á meðal forsætisráðherra Möltu, Joseph Muscat, sem sagðist ekki ætla að mæta því fjölskylda Galizia vildi ekki hafa hann á staðnum. „Ég veit hvar ég á að vera og hvar ég á ekki að vera,“ sagði Muscat í útvarpsviðtali nokkrum klukkutímum fyrir fjöldafundinn. „Ég er ekki hræsnari.“

Eig­in­kona Muscats er meðal þeirra sem Galizia sakaði um spill­ingu, en Muscat sjálf­ur hef­ur alltaf neitað því að hafa gert nokkuð rangt og hét því að segja af sér ef í ljós kæmi að fjöl­skylda hans ætti leyni­lega af­l­ands­reikn­inga líkt og Galizia hafði full­yrt. Hann hefur sagt opinberlega að morðið á henni sé villimannslegt og að hann uni sér ekki hvíldar fyrr en málið hefur verið rannsakað til hlítar.

Einn viðmælandi AFP-fréttastofunnar sagði stjórnvöld hafa blóð á höndum sínum.
Einn viðmælandi AFP-fréttastofunnar sagði stjórnvöld hafa blóð á höndum sínum. AFP

Þá mætti leiðtogi stjórnarandstöðunnar, Adrian Delia, ekki heldur á fjöldafundinn. Hann sagðist ekki vilja vekja reiði, en Galizia hafði einnig sakað hann um spillingu.

Forseti Möltu, Marie-Louise Coleiro Preca, var viðstödd fjöldafundinn þar sem fólk veifaði maltneska fánanum hélt á skiltum með áletruninni „Það eru skúrkar alls staðar“ og „Blaðamenn verða ekki þvingaðir til þagnar“.

Francesca Aquilina, sem var á fundinum, sagði í samtali við AFP-fréttastofuna að yfirvöld væru með „blóð á höndum sínum“ og Camelo Pace sagði stjórnmálamenn „gráta krókódílatárum“.

Ríkisstjórn Möltu hefur boðið eina milljón evra í verðlaun og heitið fullri vernd þeim sem getur veitt upplýsingar um morðið á Galizia.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert