Fjórir eru látnir eftir að Cessna flugvél og þyrla skullu saman í loftinu yfir Buckinghamskíri á Englandi um hádegisbil í dag. Báðar vélarnar hröpuðu til jarðar í skógelendi í nágrenni Waddeson-setursins. Tveir einstaklingar voru um borð í hvorri vél og létust þeir allir í slysinu, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Thames Valley. BBC greinir frá.
Mitch Missen, slökkviliðsmaður á frívakt, varð vitni að slysinu þar sem hann stóð út í garðinum sínum. „Ég leit upp og sá vélarnar rekast saman í loftinu, í kjölfarið heyrðist mikill hvellur og brak úr vélunum féll til jarðar,“ sagði Missen í samtali við BBC.
„Ég rauk og sótti bíllyklana mína og þegar ég var kominn í bílinn hringdi ég í neyðarlínuna, sem ég gaf frekari upplýsingar um staðsetninguna. Því miður gat ég ekki staðsett vélarnar nákvæmlega en leiðbeindi viðbragðsaðilum eins vel og ég gat. Þegar þeir voru komnir á staðinn snéri ég aftur heim.“
Vélarnar tengjast æfingasvæði sem er í nágrenninu, að því er kom fram í frétt Sky í dag. Svæðið nota ýmsir aðilar til æfinga í flugi á margvíslegum loftförum, s.s. flugvélum, þyrlum og svifdrekum.
Samkvæmt frétt BBC er hafin sameiginleg rannsókn rannsóknarnefndar flugslysa og lögreglu á slysinu og tildrögum þess.