Prinsarnir í hlutverk stormsveitarmanna

Prinsarnir Harry og William gætu leynst á bakvið þessar grímur.
Prinsarnir Harry og William gætu leynst á bakvið þessar grímur. imdb

Bresku prinsarnir Harry og William bregða sér í hlutverk stormsveitarmanna í næstu Star Wars-kvikmynd, The Last Jedi, sem frumsýnd verður í desember. Þetta staðfesti leikarinn John Boyega í viðtali við Hollywood Reporter.

Sjálfur leikur Boyega stormsveitarmanninn Finn, en hann staðfesti þar að auki að Tom Hardy hefði komið að tökunum í stormsveitarbúning.

Haft er eftir Boyega að það hafi verið frábær upplifun að fá að leika við hlið þessara frægustu bræðra heims.

Áður höfðu verið uppi getgátur þess efnis að prinsarnir tækju þátt í kvikmyndinni, en til þeirra sást á tökustað í apríl 2016.

William og Harry leika stormsveitarmenn í Star Wars: The Last …
William og Harry leika stormsveitarmenn í Star Wars: The Last Jedi. AFP
John Boyega hlaut Bafta-verðlaunin sem upprennandi stjarna árið 2016.
John Boyega hlaut Bafta-verðlaunin sem upprennandi stjarna árið 2016. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert