Serbar verða að „sætta sig við sannleikann“

Bakir Izetbegovic, einn af þremur forsetum Bosníu, hvatti Serba til að „sætta sig við sannleikann“ eftir að stríðsglæpadómstóllinn í Haag dæmdi fyrrverandi herforingja Bosníu-Serba, Rat­ko Mla­dic, í lífstíðarfangelsi í dag.

Mladic var fundinn sekur um  þjóðarmorð í stríðunum sem geisuðu á Balk­anskag­a í lok 20. ald­ar. 

„Eina leiðin til að framtíð landsins verði betri en fortíðin er sú að menn sætti sig við sannleikann,“ sagði Izetbegovic á blaðamannafundi í Sarajevo í Bosníu í dag.

„Það ætti enginn að kalla Ratko Mladic hetju, syngja söngva um hann eða upphefja glæpina sem hann framdi,“ bætti Izetbegovic við.

Mla­dic var kallaður „Slátr­ar­inn frá Bosn­íu“ en ákær­an á hend­ur hon­um var í ell­efu liðum. Þar á meðal fyr­ir glæpi gegn mann­kyn­inu. Hann var sak­felld­ur fyr­ir fjölda­morð á rúm­lega sjö þúsund múslim­um í Bosn­íu, karl­mönn­um og drengj­um, í borg­inni Srebr­enica árið 1995 og umsátrið um borg­ina Saraj­evo þar sem yfir 10 þúsund manns létu lífið. Hann hyggst áfrýja dómnum.

Ættingjar þeirra sem létust í stríðinu á Balkanskaga á tíunda …
Ættingjar þeirra sem létust í stríðinu á Balkanskaga á tíunda áratug síðustu aldar fylgdust með þegar Mladic var leiddur fyrir dómara í dag. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert