Tígrisdýr ráfaði um götur Parísar

Tígrisdýrið var drepið eftir að það slapp.
Tígrisdýrið var drepið eftir að það slapp. AFP

Tígrisdýr slapp úr sirkus í miðbæ Parísar í dag og ráfaði um göturnar fyrir sunnan Effel-turninn áður en eigandi dýrsins náði því og drap það. Eigandinn sætir nú yfirheyrslum vegna málsins.

Lögreglan í París greindi frá því á Twitter-síðu sinni að tígrisdýr hefði sloppið en síðar var sagt frá því að hættan væri liðin hjá.

„Eigandinn fékk vægt áfall en þegar við komum var dýrið dautt,“ sagði Valerian Fuet, talsmaður slökkviliðsins í París, við AFP-fréttastofuna.

Franskir fjölmiðlar segja að enginn hafi slasast, nema dýrið, en vegfarendur óskuðu eftir lögregluaðstoð þegar þeir sáu dýrið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert