Nýja-Sjáland hefur nú fyrst landa bannað ígræðslu neta í leggöng kvenna eftir að efasemdir hafa vaknað um öryggi og árangur slíkra aðgerða. Netin hafa verið notuð af læknum víða um heim, þar á meðal á Íslandi, til að lagfæra blöðru-, leg- og endaþarmssig kvenna, en þau er sett undir slímhúðina í leggöngunum. The Guardian greinir frá.
Ýmis vandkvæði og aukaverkanir hafa komið upp í tengslum við netin og hafa konur lýst óbærilegum sársauka vegna þeirra. Sumar kvennanna geta jafnvel ekki gengið vegna sársauka og ekki stundað kynlíf. Þær segja lífsgæði sín hafa skerst verulega. Hundruð Ástralskra kvenna standa nú í hópmálsókn á hendur lækningavöruframleiðandanum Johnson & Johnson, sem framleiðir slík net, en þær telja sig hafa verið tilraunadýr framleiðandans. Sambærileg dómsmál eru einnig í gangi fyrir dómstólum í Kanada og Bandaríkjunum.
Kristín Jónsdóttir, yfirlæknir á kvennadeild Landspítalans, sagði í samtali við mbl.is í haust að netin hefðu ekki verið prófuð nógu vel áður en þau voru sett á markað. Þá sagði hún netin oft notuð í þeim tilfellum þar sem aðrar aðferðir hentuðu betur. Sjálf sagðist hún ekki nota netin nema af illri nauðsyn þegar allar aðrar aðferðir hefðu verið reyndar.
Hún sagði netin hafa verið sett á markað sem lausn fyrir reynslulitla lækna til að framkvæma aðgerðir á þessu svæði. „Þetta er svæði sem erfitt er að gera aðgerðir á og maður þarf mikla þjálfun. Það getur tekið langan tíma að þjálfa sig upp. Þetta er stórt vandamál. Það eru margar konur með blöðru- og legsig, þannig það eru kannski margir að gera aðgerðir án þess að hafa nógu mikla reynslu. Netið var sett á markaðinn sem lausnin, en sýndi sig svo að það voru ýmis vandkvæði, af því það var ekki búið að rannsaka það nógu mikið.“
Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneyti Nýja Sjálands sem send var út á mánudag dag kom fram að ráðuneytið hefði ritað helstu framleiðendum slíkra neta bréf og krafist þess að þeir myndu hætta markaðssetningu þeirra í landinu, nema þeir gætu sannað að vörur þeirra væru öruggar. Bann við sölu netanna tekur að öllu óbreyttu gildi þann 4. janúar næstkomandi.
Ákvörðuninni hefur verið fagnað af þeim sem barist hafa gegn notkun netanna, enda eru aukaverkanir sem ísetning þeirra getur haft í för með sér algjörlega óásættanlegar, að þeirra mati. Læknar hafa hins vegar lýst yfir áhyggjum vegna þess hve víðtækt bannið er.
Þeir hafa bent á að dregið hafi úr notkun neta þegar lagfæra á sig þar sem líffæri eins og þvagblaðra eða endaþarmur bunga inn í leggöngin. Þeim læknum hafi fækkað sem noti það sem fyrsta val. Margir læknar noti netin hins vegar í aðgerðum til að draga úr þvagleka, en netin eru sögð hafa marga kosti fram yfir hefðbundnar skurðagerðir.
„Nýja Sjáland verður eina landið sem bannar þessar vörur og verður það til þess að konum stendur ekki lengur til boða áhrifarík aðgerð til að draga úr óþægilegum og hvimleiðum kvilla,“ sagði Giovanni Losco, talsmaður þvagfærasérfræðinga á Nýja Sjálandi og í Ástralíu.