Gekk berserksgang og ók á 6 hraðamyndavélar

Ekki kom fram hverrar tegundar traktorinn var, en ólíklegt þykir …
Ekki kom fram hverrar tegundar traktorinn var, en ólíklegt þykir að ökumaðurinn hafi fengið hraðasekt á ökutækinu. Mynd úr safni.

Ökumaður traktors sem gekk berserksgang og ók á sex hraðamyndavélar olli tjóni upp á hundruð þúsundir evra að sögn þýsku lögreglunnar. Ökumaðurinn, sem er 63 ára, var hvorki drukkinn né undir áhrifum vímuefna. Hann beindi traktor sínum hins vegar viljandi að hraðamyndavélum í smábænum Gernsheim í gærkvöldi og nú í morgun, en lögregla segir ekki liggja fyrir hvað manninum gekk til.

Það er þó talið ólíklegt að hann hafi áður fengið hraðasekt fyrir að aka á traktornum um svæðið þar sem traktorinn sem maðurinn var á náði ekki nema sex km hámarkshraða að því er BBC greinir frá.

Maðurinn verður ákærður fyrir eignaspjöll að sögn lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert