Björguðu hlébarða úr brunni

Fjöldi fólks hjálpaðist að við að bjarga hlébarða sem fallið hafði ofan í um átta metra djúpan brunn í Assam-ríki á Indlandi. Um tólf tíma tók að koma dýrinu úr brunninum. Það var í kjölfarið flutt í dýragarð.

Um 12-14 þúsund hlébarðar eru á Indlandi. Þar sem byggð manna þrengir stöðugt að búsvæðum þeirra eru árekstrar á milli þeirra og mannfólksins að verða algengari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert