Kýrin Stormy lét lögregluyfirvöld í Philadelphiu í Bandaríkjunum heldur betur hafa fyrir sér. Stormy átti að taka þátt í uppfærslu á helgileiknum, þar sem lifandi dýr eru höfð í aukahlutverkum að því er BBC greinir frá.
Henni hugnaðist þó ekki leikarastarfið betur en svo að hún flúði í tvígang úr gerðinusem hún var geymd í , við kirkju í borginni.
COW ON THE LAM: Stormy the Cow had a not-so-silent night, escaping not once but twice from a nativity scene in Philadelphia. https://t.co/VXCv8BhFmv pic.twitter.com/NheZvmcECH
— ABC News (@ABC) December 15, 2017
Voru lögreglumenn í bæði skiptin sendir á eftir kúnni sem lét þá elta sig góðan spöl áður en hún var handsömuð.
Holy cow! 'Stormy' the cow makes a break from live nativity https://t.co/ANJw6lSQzf
— BBC News (World) (@BBCWorld) December 15, 2017
Gárungarnir voru ekki seinir á sér að stofna Twitter reikning í nafni Stormy eftir þessar æsilegu flóttatilraunir og er Stormy látin fullyrða þar að ástæða flóttans sé sú að hún trúi ekki á meyfæðinguna.
I don’t believe in the Virgin Birth
— STORMY THE ESCAPED NATIVITY COW (@stormy_the_cow) December 14, 2017