„Eins og við værum á leið niður brekku“

Fjölmennt lið slökkviliðs og lögreglu er á vettvangi.
Fjölmennt lið slökkviliðs og lögreglu er á vettvangi. AFP

„Allt í einu heyrðum við mikinn hávaða og mér leið eins og við værum á leið niður brekku,“ sagði Chris Karnes. Hann var farþegi lestarinnar sem steyptist af spori sínu og niður á hraðbraut í Washington-ríki í Bandaríkjunum. 

Ekki er ljóst hversu margir létust í slysinu en 78 farþegar voru í lestinni auk fimm manna áhafnar.

Karnes segir að farþegar hafi skollið á sætin fyrir framan sig. „Síðan brotna rúðurnar og við stöðumst. Ljósin slokkna og allir öskra,“ sagði Karnes.

Slysið varð klukk­an hálf átta að staðar­tíma en lest­in var á leið frá Seattle til Port­land. Lest­in var á 130 kíló­metra hraða á klukku­stund.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert