Fimleikaþjálfari, sem sendi meira en 100 stúlkur í meðferð við meiðslum til læknisins Larry Nassar áður en upp komst að hann hefði misnotað fjölda stúlkna, krafðist þess að Nassar horfði í augun á fórnarlömbum sínum. Réttarhöld yfir Nassar standa yfir.
Fórnarlömb hans hafa lýst því yfir við vitnaleiðslur hvernig hann beitti þau hrottalegu kynferðislegu ofbeldi árum saman og hvaða áhrif þetta hefur haft á líf þeirra. Nassar, sem er 54 ára gamall, hefur játað sök um kynferðislegt ofbeldi í tíu málum í tveimur sýslum í Michigan og á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi.
Þjálfarinn Thomas Brennan reiddist þegar ein stúlka sem hann þjálfaði var með tárin í augunum að lýsa því hvernig Nassar misnotaði hana.
„Ég man enn þá hvernig tilfinningin var þegar hann kom við mig. Ég man hvernig ég kipptist við þegar hann snerti mig en þá sagði hann: „Þetta er allt í lagi. Ég veit að þú ert ekki vön því að láta snerta þig svona en þér mun líða betur.“,“ sagði Gwen Anderson.
„Líttu á hana,“ kallaði Brennan, sem stóð við hlið Anderson. Nassar hefur að mestu leyti setið með höfuð í greipum sér við vitnaleiðslur og ekki horft framan í fórnarlömbin.
Dómarinn bað Brennan að stafa nafnið sitt þegar Anderson hafði lokið vitnisburði sínum. Hann gerði það, stoppaði og leit á Nassar áður en hann hélt áfram: „Farðu til helvítis!“
Brennan lýsti því síðan að hann hefði sent margar ungar íþróttakonur til Nassar enda var hann grunlaus um að læknirinn misnotaði stúlkurnar.
„Það er erfitt að reyna að lýsa sektarkenndinni,“ sagði Brennan.