Lögreglan á Englandi hefur handtekið 54 ára gamlan mann eftir að átta ára stúlka var stungin til bana í grennd við Walsall í miðju Englandi.
Lögregla var kölluð út rúmlega sjö í gærkvöldi og þegar komið var á staðinn fundu lögregluþjónar alvarlega særða stúlku.
„Við fórum rakleiðis með hana á sjúkrahús en því miður var ekki hægt að bjarga henni,“ sagði lögreglumaður.
Maðurinn sem var handtekinn var einnig fluttur á sjúkrahús í gærkvöldi vegna stungusárs á maga en lögregla segir að maðurinn og fórnarlambið tengist fjölskylduböndum.