Drullaðu þér aftur upp í tréð

Cyrille Regis féll frá á dögunum.
Cyrille Regis féll frá á dögunum.

Cyrille Regis, sem lést á dögunum, og fyrstu svörtu leikmennirnir sem kvað að í ensku knattspyrnunni máttu þola ótrúlegt mótlæti vegna húðlitar síns á áttunda áratugnum. Viðkvæmir eru varaðir við orðbragðinu í þessari grein. 

„Svarti aumingi. Drullaðu þér aftur upp í tréð, helvítis tuskudúkkan þín!“

Árið er 1978 og við erum stödd á heimavelli enska knattspyrnufélagsins West Bromwich Albion. Það er hornspyrna og George Berry, þeldökkur leikmaður gestanna, Wolverhampton Wanderers, spyr bulluna í stúkunni beint út hvorum aurslettan sé ætluð, honum sjálfum eða leikmanninum sem hann er að valda, Cyrille Regis, helsta markaskorara heimaliðsins, sem einnig er þeldökkur. Fátt er um svör. Þegar Berry rifjaði þessa sögu upp löngu seinna þótti honum viðbrögð Regis standa upp úr. Hann hristi bara höfuðið og hélt áfram. Dólgurinn virtist ekki trufla hann eitt augnablik. Cyrille Regis var kominn til að leika knattspyrnu og láta verkin tala – en ekki illmælgina.

Berry dáðist að þessari yfirvegun; hefði líklega þegið ofurlítið af henni sjálfur en seinna var hann handtekinn fyrir að ráðast á áhorfanda í stúkunni eftir að hafa setið undir svívirðingum hans í leikslok. À la Eric Cantona, bara miklu fyrr. Ólíkt Cantona sætti Berry ekki leikbanni; það hentaði knattspyrnusambandinu mun betur að sópa málinu undir teppið enda hefði þurft að spyrja óþægilegra spurninga við rannsókn þess. Varðstjórinn á lögreglustöðinni hellti sér hins vegar yfir Berry.

Andrúmsloftið var nær óbærilegt fyrir fyrstu kynslóð svartra leikmanna sem haslaði sér völl í ensku knattspyrnunni á ofanverðum áttunda áratugnum. Hatrið var svakalegt og stór hópur áhorfenda staðráðinn í að hrekja þá burt með öllum tiltækum ráðum. Knattspyrna væri íþrótt hvíta mannsins.

Náðu í perur og banana!

Fræg er sagan af því þegar Brian Clough, knattspyrnustjóri Nottingham Forest, sendi hinn nítján ára gamla Viv Anderson að hita upp í leik í efstu deild. Skömmu síðar sneri Anderson aftur og tyllti sér við hlið stjórans á bekknum. „Hva, sagði ég þér ekki að hita upp?“ spurði Clough gáttaður.

„Jú,“ svaraði Anderson aumur, „en þeir eru að henda banönum, eplum og perum í mig!“
Clough starði agndofa á piltinn og rak hann svo með harðri hendi aftur að hita upp. „Og náðu fyrir mig í tvær perur og banana í leiðinni!“

Skilaboðin voru skýr: Ætlir þú að verða knattspyrnumaður getur þú ekki látið svona lagað trufla þig! Anderson lærði sína lexíu og lét áhorfendur ekki slá sig út af laginu aftur. Hans beið glæstur ferill því Viv Anderson varð fyrsti svarti leikmaðurinn til að skrýðast búningi enska landsliðsins, haustið 1978, auk þess að verða bæði enskur meistari og Evrópumeistari með Forest.

WBA-leikmennirnir Laurie Cunningham og téður Cyrille Regis komu næstir en þeir eru nú báðir látnir. Sá fyrrnefndi fórst í bílslysi á Spáni árið 1989, aðeins 33 ára að aldri, og Regis sálaðist um liðna helgi, rétt að verða sextugur. Banamein hans var hjartaslag.
Eitt er að útiloka, annað að heyra, og Regis, Berry og margir fleiri hafa staðfest að enda þótt þeir létu ekki á því bera heyrðu þeir vitaskuld hvað um þá var sagt meðan á leikjunum stóð – hvert einasta orð.

„Auðvitað reitti þetta mann til reiði,“ sagði Regis, „en maður lærði að snúa reiðinni upp í hvatningu. Við svöruðum áhorfendum með hæfileikum okkar. Þannig komum við höggi á þá.“
Anderson, Cunningham og Regis létu níðið, eins óverðskuldað og það var, yfir sig ganga og létu æskudrauminn rætast. Regis var löngu seinna spurður að því hvort ekki hefðu verið margir svartir leikmenn á þessum tíma, mögulega enn þá betri en þeir sem hér hafa verið nefndir, sem ekki þoldu álagið og urðu frá að hverfa. „Það er 100% öruggt,“ svaraði hann um hæl.

Lengi eimdi eftir af þessu viðhorfi áhorfenda til svartra leikmanna, jafnvel eftir að margir þeirra höfðu slegið í gegn – og gerir sjálfsagt enn. Þannig var Simon Darby, fyrrverandi varaformaður breska þjóðarflokksins, einu sinni spurður að því hver væri uppáhaldsleikmaðurinn hans. „Cyrille Regis,“ svaraði hann, hátt og snjallt, enda stuðningsmaður WBA „En þótt hann sé hetjan mín er ekki þar með sagt að ég myndi vilja að barnabörnin mín yrðu svört!“

Hjá sumum eru enn þá miðaldir.

Nánar er fjallað um málið í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.

Viv Anderson, fyrsti svarti maðurinn til að leika landsleik fyrir …
Viv Anderson, fyrsti svarti maðurinn til að leika landsleik fyrir England.
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert