Skotárás á menntaskóla í Kentucky

Skólinn er í borginni Benton í Kentucky og var allt …
Skólinn er í borginni Benton í Kentucky og var allt lögreglulið borgarinnar boðað á vettvang. Kort/Google

Einn lést og fjölmargir særðust í skotárás sem gerð var á menntaskóla í Kentucky í Bandaríkjunum í dag. Matt Bevin, ríkisstjóri Kentucky, greindi frá þessu á Twitter í dag.

„Hörmuleg skotárás á Marshall County-menntaskólann [...] Árásarmaðurinn er í varðhaldi. Það er staðfest að einn er látinn og fjöldi annarra særður,“ sagði í færslu Bevin.

Sagði Bevin enn margt vera á huldu og bað fólk að láta allar getgátur eiga sig á meðan lögreglumenn og sjúkraliðar sinntu sínum störfum.

Yfirmaður neyðarþjónustu á staðnum, Darlene Lynn, segir sjö hafa verið senda á sjúkrahús til aðhlynningar við sárum sínum og voru nokkrir þeirra fluttir með þyrlu. 

Skólinn er í borginni Benton í Kentucky og var allt lögreglulið boðað á vettvang að því er fréttastofa CNN hefur eftir Beth Cooper, starfsmanni borgarskrifstofunnar.

Ekki liggur fyrir hver ástæða árásarinnar er.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert