Greip barn sem féll af þriðju hæð

Hér má sjá lögreglumanninn við það að grípa barnið.
Hér má sjá lögreglumanninn við það að grípa barnið.

Lögreglumaður í Egyptalandi greip barn sem féll af þriðju hæð húss í borginni Asyut. Lögreglumaðurinn var á eftirlitsvakt við banka sem er í húsinu er atvikið átti sér stað. Björgun barnsins tókst og hlaut það ekki skaða af fallinu.

Lögreglumaðurinn hlaut minni háttar meiðsl við björgunina.

Innanríkisráðuneyti Egyptalands hefur birt myndskeið úr öryggismyndavél af atvikinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert