Tveir voru skotnir til bana fyrir utan útibú UBS-bankans í Zürich í Sviss rétt fyrir klukkan 14.30 að staðartíma. Lögreglan hefur greint frá því að ekki sé frekari hætta á ferðum.
Sjónvarvottar segja að fjórum eða fimm skotum hafi verið hleypt af. Björgunarfólk fann tvö fórnarlömb, annað var þegar látið og hitt lét lífið fljótlega.
Ekki er ljóst hver ástæða skotárásarinnar er en í svissneskum fjölmiðlum má sjá líkin liggja hlið við hlið á gangstétt. Annar hinna látnu lítur út fyrir að halda á byssu.