Facebook-síðu Cambridge Analytica lokað

Síðu fyrirtækisins hefur verið lokað á Facebook.
Síðu fyrirtækisins hefur verið lokað á Facebook. AFP

Facebook hefur lokað síðu fyrirtækisins Cambridge Analytica, sem stærði sig af því að hafa átt þátt í sigri Donalds Trump í bandarísku forsetakosningunum.

Síðu fyrirtækisins á samfélagsmiðlinum var lokað eftir að fregnir bárust af því að það hefði geymt upplýsingar úr prófílum milljóna bandarískra kjósenda á Facebook, án þeirra leyfis.

Að sögn dagblaðanna New York Times og Observers stal fyrirtækið upplýsingum úr prófíl 50 milljóna notenda Facebook, sem mun vera stærsti þjófnaðurinn á gögnum Facebook til þessa.

Gögnin voru notuð til að hjálpa Cambridge Analytica að hanna hugbúnað til að spá fyrir um og hafa áhrif á val kjósenda á kjörstað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert