Vísa breskum erindrekum úr landi

Sergei Lavrov, utanríkisráðerra Rússlands.
Sergei Lavrov, utanríkisráðerra Rússlands. AFP

Rússneska utanríkisráðuneytið tilkynnti í morgun að það muni vísa 23 breskum stjórnarerindrekum úr landi á næstu viku. Rússar höfðu áður sagt að þeir ætluðu að svara Bretum í sömu mynt en Bretar greindu frá því á miðvikudag að þeir ætla að vísa 23 rússneskum erindrekum úr landi.

Mikil spenna hefur verið milli landanna eftir að eitrað var fyrir gagnnjósn­ar­an­um Ser­gei Skripal og dótt­ur hans Yuliu í byrjun mánaðarins. 

Bretar og fleiri Vesturveldi telja fullvíst að Rússar standi á bak við árásina en Rússar segja þær ásakanir fáránlegar.

Ser­gei Lavr­ov, ut­an­rík­is­ráðherra Rúss­lands, sagði á fimmtudag að það kæmi ekki annað til greina en að svara Bretum í sömu mynt. Hann sagði ásakanir Theresu May, forsætisráðherra Bretlands, þess efnis að Rússar bæru ábyrgð á tilræðinu á Skripal-feðginum „brjálæðislegar“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert