Þrettán ára stúlka í Mississippi lést eftir að níu ára gamall bróðir hennar skaut hana er þau voru að spila tölvuleik.
Í frétt BBC er haft eftir lögreglunni að systkinin hafi verið að leika sér í tölvuleik á laugardag. Bróðirinn hafi gripið til byssu er systir hans neitaði að afhenda honum fjarstýringuna. Hann er sagður hafa skotið hana í hnakkann.
Lögreglan greindi frá því í gær að stúlkan hefði látist af sárum sínum á sjúkrahúsi í Memphis. Ekki hefur verið upplýst um hvernig drengurinn fékk byssuna.