Liðsmenn hryðjuverkasamtakanna Boko Haram hafa skilað 111 nígerískum skólastúlkum sem þeir rændu úr skóla í norðuraustur hluta Nígeríu í lok febrúar.Talsmaður foreldra stúlknanna staðfesti þetta við AFP-fréttastofuna í morgun.
„Það er búið að skila stúlkunum. Það var komið með þær í níu farartækjum og þær skildar eftir fyrir utan skólann klukkan sjö í morgun,“ sagði Bashir Manzo, talsmaður foreldranna.