Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ákveðið að skipta út hershöfðingjanum H.R. McMaster fyrir John Bolton, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum.
Mbl.is greindi frá því í vikunni að Trump hefði ákveðið að reka McMaster en ætlaði sér að taka sér tíma í að framkvæma ákvörðunina.
Bolt er mikils metinn hjá harðlínumönnum repúblikana í Bandaríkjunum og sérstakur álitsgjafi hjá sjónvarpsstöðinni Fox News.
Hann hefur áður starfað fyrir þrjá fyrrverandi forseta Bandaríkjanna; Ronald Reagan og Bush-feðga. Hann var einn helsti talsmaður hinnar umdeildu innrásar í Írak árið 2003 og hefur talað fyrir hernaðaraðgerðum gegn Íran og Norður-Kóreu.
Bolt er þriðji þjóðaröryggisráðgjafi Trump á 14 mánuðum.
Trump og MacMaster hafði ekki komið vel saman en McMaster sagði í síðasta mánuði að óumdeilanlegt væri að Rússar hefðu reynt að hafa áhrif á forsetakosningarnar í Bandaríkjunum 2016. Í nóvember var fullyrt að þjóðaröryggisráðgjafinn hefði kallað Trump „fábjána“ og „fífl“ í einkasamkvæmi í júlí.
Sem fyrr greindi Trump frá þessu á Twitter-síðu sinni þar sem hann tilkynnti að Bolt hæfi störf 4. apríl. Þá þakkaði hann McMaster fyrir framúrskarandi vel unnin störf og sagði hann ávallt vin sinn.
I am pleased to announce that, effective 4/9/18, @AmbJohnBolton will be my new National Security Advisor. I am very thankful for the service of General H.R. McMaster who has done an outstanding job & will always remain my friend. There will be an official contact handover on 4/9.
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) March 22, 2018
Fréttin var uppfærð kl. 23:57 með upplýsingum um John Bolton.