Skotinn til bana vegna síma

Mótmælendur komu í veg fyrir að áhorfendur kæmist inn á …
Mótmælendur komu í veg fyrir að áhorfendur kæmist inn á leikvanginn. AFP

Mótmælendur í Sacramento í Kaliforníu lokuðu í gær hraðbraut og körfuboltaleikvangi í borginni vegna nýlegs atviks þar sem lögreglumenn skutu óvopnaðan þeldökkan mann til bana. Mótmælendur byrjuðu á því að ganga að ráðhúsi borgarinnar með mótmælaskilti og hvöttu til aðgerða gegn ofbeldi lögreglu í garð þeldökkra einstaklinga. BBC greinir frá.

AFP

Það voru samtökin Black lives matter sem skipulögðu mótmælin eftir að myndband sem sýnir lögreglumenn skjóta 20 sinnum á hinn 22 ára Stephon Clark var gert opinbert. Lögregla hafði verið kölluð út vegna innbrota á heimili og í bíla í hverfinu. Clark var úti í garði hjá ömmu sinni og afa þegar lögregla hrópaði í áttina að honum „byssa, byssa, byssa“ áður en þeir hófu skothríð. Hvor lögreglumaður skaut tíu skotum. Í ljós kom hins vegar að Clark var óvopnaður, en var með síma í hendinni sem lögregla taldi vera byssu.

AFP

Mótmælendur stóðu á götum úti og hrópuðu „ekki skjóta, þetta er sími“. Miklar umferðartafir urðu vegna mótmælanna, en mótmælendur færðu sig svo að Golden 1 Center leikvanginum þar sem Sacramento Kings áttu að spila við Atlanta Hawks klukkan 19 að staðartíma. Þeir hindruðu gesti í að komast inn á leikvanginn og aðeins 2.000 áhorfendur af um 17.000 náðu að komast í sæti áður en leikurinn hófst.

Lögregla var kölluð til en mótmælin voru friðsamleg og enginn var handtekinn. Fjölmargir sem áttu miða á leikinn sýndu mótmælendum stuðning á meðan aðrir voru reiðir yfir þessari truflun.

Það voru samtökin Black lives matter sem skipulögðu mótmælin.
Það voru samtökin Black lives matter sem skipulögðu mótmælin. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert